Þróunarsjóður leikskóla

HeimÞróunarsjóður leikskóla

 

Þróunarsjóður leikskóla starfar samkvæmt reglum nr. 163/2001 sem settar eru á grundvelli 5. gr. laga nr. 78/1994 um leikskóla. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum með hliðsjón af aðalnámskrá leikskóla. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í leikskólastarfi.

Þriggja manna úthlutunarnefnd metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um styrkveitingar. Í nefndinni eru fulltrúar frá Háskólanum á Akureyri, Félagi leikskólakennara og menntamálaráðuneytinu.

Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið ný forgangssvið Þróunarsjóðs leikskóla árið 2008:

A.  Hvernig læra leikskólabörn?

B.  Barnamenning - leikir og listir leikskólabarna

C.  Önnur verkefni

Símenntun Rannsóknir Ráðgjöf  - SRR (sem áður hét Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands) annast umsýslu Þróunarsjóðs leikskóla skv. samningi við menntamálaráðuneytið.   

Lýsingar á verkefnum sem hlotið hafa styrk má sjá á krækjunum hér til hliðar.

 Nánari upplýsingar veitir Ásdís Hrefna Haraldsdóttir asdish@hi.is  s. 525-5982

Verkefni 2002-2003

Verkefni 2003-2004

Verkefni 2004-2005

Verkefni 2005-2006

Verkefni 2006-2007

Verkefni 2007-2008

Verkefni 2008-2009

 

Símenntun    Rannsóknir   Ráðgjöf