September - desember 2005

Opinn fyrirlestur miðvikudaginn 23. nóvember kl. 16:15 í Bratta,

Kennaraháskóla Íslands v/Stakkahlíð
 

Guðrún Kristinsdóttir  prófessor og Ingibjörg H. Harðardóttir lektor Kennaraháskóla Íslands

 

 

Hvaða vita börn um ofbeldi á heimilum?

 

Meginmarkmið verkefnisins sem fyrirlesturinn byggir á er að athuga hvernig börn almennt skilja og skynja ofbeldi á heimilum, áhrif þess á börn og álit þeirra á vænlegum viðbrögðum. Annað markmið er að draga lærdóm af reynslu barna og mæðra sem búið hafa við ofbeldi á heimilum. Leitast verður við að skoða styrk barnanna sjálfra og líta ekki á þau ekki sem óvirk fórnarlömb.

Rannsóknin stendur yfir frá 2005 –­ 2008.  Hópur við Kennaraháskóla Íslands vinnur að henni undir stjórn fyrirlesara. Verkefnið á sér  m. a. fyrirmynd í breskri rannsókn sem fram fór með styrk breska rannsóknarráðsins (ESRC) og veittu forsvarsmenn hennar góðfúslega aðgang að spurningalistum sem notaðar verða auk viðtala.

Mikilvægt er að afla þekkingar meðal barna á ofbeldi á heimilum en hérlendar rannsóknir á því hafa eingöngu beinst að fullorðnum. Þetta er alvarlegt þar sem margt bendir til að slíkt ofbeldi hafi alvarleg áhrif á börn. Fræðilegan bakgrunn má rekja til nýlegra rannsóknaráherslna, um að börn séu virkir gerendur og að mikilvægt sé að fá fram sjónarmið þeirra sjálfra og samstarf við þau í leit að nýrri þekkingu.

Athyglinni verður beint að uppbyggingu og aðferðafræði rannsóknarinnar, þar er mörgu að huga þar sem viðfangsefnið er margþætt og vandmeðfarið.

 

 

____

 

Heimasíða Rannsóknarstofnunar KHÍ: http://rannsokn.khi.is